Íslenska framleiðlsukerfið á mjólkurvöru kostar neytendur hér á landi átta milljarða króna á ári að því fram kemur í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands en þar er lagt til að innflutningstollar í greininni verði lækkaðir um 20% til að lækka verð til almennings.
Stofnunin horfir til áranna 2011 til 2013 í skýrslu sinni sem kom út á þriðjudag en þar segir að hvert þessara ára hafi íslenska mjólkin kostað neytendur og ríkið 15 milljarða króna, eða sem nemi átta milljörðum króna umfram það sem verið hefði ef innflutningur á mjólk væri leyfður. Íslensk mjólk sé einfaldlega dýrari í framleiðslu en innflutt mjólk frá öðrum ríkjum.
Stofnunin leggur til að innflutningstollar á mjólkurafurðir verði lækkaðir um fimmtung til að lækka verð til almennings. Með því móti myndi skapast vettvangur til að bjóða upp á erlenda mjólkurvöru hér á landi við hlið þeirrar íslensku sem enn yrði vel samkeppnishæf. Í þessu efni er bent á að afnám tolla á innflutt grænmeti hafi ekki skaðað innlenda framleiðslu heldur miklu fremur styrkt hana í sessi; samkeppni auki skilvirkni og bæti framleiðsluna.
Bændasamtökin gagnrýna margt það sem fram kemur í skýrslu stofnunarinnar og benda þar meðal annars á að eftirgjöf á opinberum álögum hafi ekki alltaf skilað sér í vasa almennings svo sem ítrekaðar verðkannanir ASÍ hafi leitt í ljós.