Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur keypt mjólkubúið Kú ehf. Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á Íslandi á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir og flytur inn matvæli og sérvörur af ýmsum toga. Ölgerðin er auk þess ein stærsta heildasala landsins og er einn stærsti framleiðandi á gosi og áfengi hérlendis og á mörg elstu og þekktustu vörumerki landsins á sínu sviði.
Kú ehf hefur frá stofnun verið ötull frumkvöðull frá stofnun og hefur félagið af afli og einurð barist gegn fákeppni á mjólkurmarkaði segir Októ Einarsson stjórnarformaður Ölgerðarinnar. Októ segir að með kaupum Ölgerðarinnar á Kú ehf. aukist slagkraftur félagsins án þess þó að það breyti frumkvöðlahugsjón félagsins. Hagur neytenda og framsýni mun ráða ríkjum. Kú ehf. hóf rekstur árið 2009 á fákeppnismarkaði mjólkurbúa.
rtá