Matvara: mjög óvenjulegt ástand

„Þetta er mjög óvenjulegt ástand, að maður sjái langar biðraðir við kassana hérna í Nettó á milli klukkan 14 og 15 á mánudegi. Ég held þetta séu ekki jólin framundan, ég held þetta sé fárviðrisspáin, að fólk ætli bara að pakka sér inn og eiga mikinn mat ef allt fer á versta veg.“

Þetta segir kona sem hafði samband við Hringbraut rétt í þessu og lýsti fyrrgreindu ástandi, sem hún segir afar óvenjulegt. „Það eru frekar fáir í verslunarmiððstöðinni sjálfri, Glerártorgi, en matvöruverslunin er full af fólki,“ bætir hún við.

Vekur þetta athygli í ljósi þess að ekki er gert ráð fyrir að mjög slæmt veður verði á Akureyri í því austanfárviðri sem senn mun halda landshlutum í heljargreipum. Aðra sögu er að segja í öðrum norðlægum byggðum líkt og Skagafirði en þar hefur verið gefin út sérstök viðvörun.

Upplifun Norðlendinga og Sunnlendinga fer saman því Egill Helgason þáttastjórnandi á Rúv var að birta eftirfarandi spurningu á eigin fésbókarsíðu: \"Furðuleg stemming í matvörubúðum. Þær eru fullar af fólki sem eigrar um í leit að einhverju sem geta talist vera vistir. Niðursuðuvörur? Brauð er að klárast. Kartöfluflögur? Má borða óhollt þegar er vont veður?\"