Ólík sýn á framtíð ksí

Ljóst verður á laugardaginn næstkomandi hvort það verður Björn Einarsson eða Guðni Bergsson sem taka við formennsku í KSÍ. Áherslur þeirra eru gjörólíkar. Úrslitin geta haft afgerandi áhrif á framtíð sambandsins.

Á laugardag verður ársþing KSÍ haldið í Vestmannaeyjum.

Mikill munur er á áherslum frambjóðendanna tveggja. Guðni boðar hóflegri breytingar á því starfi sem hefur verið. Í viðtali við mbl.í dag segist Guðni vilja styrkja faglegt starf KSÍ: „Hlut­verk for­manns er að halda áfram að styrkja ís­lensk­an fót­bolta. Ég tel okk­ur vera á réttri leið, m.a. eft­ir sig­ur­sæla tíma með landsliðum okk­ar á und­an­förn­um árum,“ Hann muni koma á fót starfi yf­ir­manns knatt­spyrnu­mála hjá sam­band­inu. Guðni seg­ist líka leggja mikla áherslu á að draga úr ferðakostnaði fé­laga.

Guðni er héraðsdómslögmaður og fyrr­ver­andi at­vinnumaður í knatt­spyrnu og fyr­irliði ís­lenska landsliðsins. Hann var 1989-1993, atvinnumaður hjá Tottenham Hotspur F.C. og á árunum1995-2003 atvinnumaður hjá Bolton Wanderers F.C.

Björn boðar aðra stefnu í viðtali við mbl. Í dag og vill breyta skipulagi sambandsins: „Ég tel að það verði að koma á meira jafn­vægi á milli stjórn­ar og skrif­stofu KSÍ. Skýr skil verða að vera á milli stjórn­ar KSÍ og dag­legs rekst­urs,“ seg­ir hann og hann muni strax fjölga stjórn­ar­fund­um upp í tvo í mánuði, efla hlut­verk vara­for­manns KSÍ og stjórn­ar bæði í ábyrgð og verka­skipt­ingu, segir Björn.

Björn hefur Séð um rekstur fyrirtækja 15 ár, á Íslandi og erlendis.m.a. hjá Eimskip og Samskip. Hefur starfar sem Framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá 2006. Björn tók við sem formaður Víkings 2013 og var formaður Knattspyrnudeildar félagsins árin 2007-2013.

Þess má geta að á mbl. kom einnig fram að aðeins tíu kon­ur eru í hópi um 150 þing­full­trúa á ársþinginu.