Mjög líklega mistök lögreglunnar

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir við ruv.is að allt bendi til þess að mistök hafi orðið þegar barnaverndaryfirvöldum var ekki tilkynnt um kæru á hendur starfsmanni þeirra fyrir gróft kynferðisofbeldi gegn börnum fyrr en hálfu ári eftir að hún var lögð fram.
 
Á vefnum kemur fram að víðtæk innanhússrannsókn sé farin af stað hjá lögreglunni á því hvernig þetta hafi getað gerst, en þar er Lögreglustjórinn spurður hvernig henni hafi orðið við þegar hún hafi áttað sig á því hvernig í pottinn væri búið í þessu alvarlega máli: \"Okkur varð náttúrulega mjög illa við. Þetta kemur til okkar vitundar 18. janúar og við fórum strax af stað og funduðum og reyndum að grafast fyrir um málið. Það var strax farið í eðlilegan feril þar sem viðkomandi var settur í gæsluvarðhald, farið í húsleit og barnaverndaryfirvöld látin vita og reynt að finna út hvaða leið væri best áfram til að komast að því hvort það væru fleiri fórnarlömb,“ segir Sigríður Björk.
 
Hún segir vefnum að greining á því hvað hafi gerst hafi innan lögreglunnar hafi staðið yfir dögum saman: \"Hvort þetta séu ferlar eða mannleg mistök eða hvað það er sem nákvæmlega gerðist þarna. Og það bendir allt til þess að þetta hafi bara verið mistök hjá okkur – það svona lítur þannig út núna – en það er verið að taka saman greinargerð og fara yfir málið í heild sinni til að reyna að læra af því og athuga hvort það sé eitthvað fleira þarna.“