Dregið hefur verulega úr alþjóðlegum ættleiðingum á undanförnum árum, en ástæða þess liggur ekki að öllu leyti fyrir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í þættinum Sjónarhorni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld sem fjallar að þessu sinni um ættleiðingar.
Þar kemur fram að margt geti valdið því að lönd bjóði ekki upp á ættleiðingar milli landa í jafn ríkum mæli og áður, en hluta skýringarinnar má örugglega frekja til ástandsins sem ríkir í heimalandinu í hverju tilviki fyrir sig. Einnig geta verið pólitískar eða efnahagslegar ástæðar fyrir samdrættinum.
Íslenskar ættleiðingar vinna í samstarfi við aðrar stofnanir á Norðurlöndunum og Evrópu en þær hafa verið að loka á alþjóðlegar ættleiðingar vegna stöðu málaflokksins. Hins vegar hefur íslenska módelið verið í stöðugri þróun og þykir merkilegt, eitt og sér, segir Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar í þætti Sjónarhorns um ættleiðingar í kvöld.
Meðal spurninga sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir spyr í þætti sínum er hvernig tilfinning það er að ættleiða barn? Er þetta langt ferli? Getur hver sem er ættleitt? Farið er yfir það helsta sem felst í því ferli að ættleiða. Þórdís Lóa fær einnig til sín tvær mæður, þær Ingibjörgu Valgeirsdóttur og Rebekku Laufeyju Ólafsdóttur sem segja frá reynslu sinni af alþjóðlegum ættleiðingum. Þær ræða hvernig ferlið sjálft hafði áhrif á þær og eiginmenn sína ásamt því hvernig tilfinning það er að ættleiða barn.
Smelltu til að horfa á klippur úr þættinum.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 21:00 í kvöld.