Mjög fáir vilja selja landsvirkjun

Einungis 13,2 landsmanna vilja að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsvirkjun, en umræður í þá veru hafa oftinnis blossað upp í samfélaginu, einkanlega þegar kreppt hefur að í ríkisrekstrinum. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun á vegum MMR sem gerð var 13. til 19. febrúar síðastliðinn. Spurt var einnig um afstöðu fólks til sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum og RÚV sem er sjálfseignastofnun að fullu í eigu ríkisins. Af þeim sem afstöðu tóku vilja 41,5 prósent selja liðlega 80 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum en mun færri, eða rétt tæp 30 prósent kváðust því fylgjandi að ríkið seldi Ríkisútvarpið. Stuðningur við sölu ríkisins á eignarhlutnum í Landsvirkjun hefur minnkað töluvert milli kannana.