Ein sérstæðasta listakona landsmanna, Elísabet Kristín Jökulsdóttir verður gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld og er óhætt að segja að þar ráði bersöglin, hispursleysið og frásagnargleðin för.
Elísabet, eða Ella Stína eins og hún er jafnan kölluð hefur sent frá sér á þriðja tug bóka sem sumar hverja hafa vakið mikla athygli fyrir opinskáar lýsingar á helgustu stöðum kvenna, ásamt frásögnum af samlífi fólks og hugarheimi kvenna í baráttunni við karllægan heim ofbeldis og ráðríkis.
Elísabet ræðir í þaula samband sitt og föður síns, Jökuls Jakobssonar leikritaskálds í þættinum en óhætt er að segja að það hafi verið mjög sérstakt og skilið eftir erfiðar minningar í huga dótturinnar þegar faðirinn féll frá 1978, en þá var Ella Stína tvítug. Upp frá því barðist hún við púka tvo sem sátu hvor á sinni öxl hennar, geðhvarfasýkina og alkóhólismann sem í sameiningu færðu hana á botn samfélagsins eftir að móðir hennar hafði svipt hana sjálfsforræði og sent með lögregluvaldi á Klepp sem síðar leiddi til þess að sonurinn, sem hún eignaðist 18 ára gömul, var tekinn af henni.
"Ég held ég hafi aldrei tekið jafn persónulegt viðtal á ríflega 30 ára fjölmiðlaferli mínum," segir Sigmundur Ernir um inntak þáttarins sem á köflum er ekki við hæfi barna eða viðkvæms fólks.
Mannamál eru frumsýnd klukkan 20.00 í kvöld.