Misstu allar drengina sína

Við heyrum frásögn þriggja mæðra sem misstu allar unga syni sína. Þær Þóranna M. Sigurbergsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Oddný Þ. Garðarsdóttir hafa allar misst  syni sína á sviplegan hátt og mæta til Lindu Blöndal í Þjóðbraut og segja frá nýútkominni bók sinni, MÓÐIR -MISSIR - MÁTTUR

Árni Garðar Hjaltason var 4ra ára þegar hann lést í bílslysi 1992, Erling Geir Yngvason dó sex ára vegna bráðasýkingar af völdum heilahimnubólgu árið 2000 og Sigurjón Steingrímsson lést 17 ára í bílslysi á Reykjanesbraut árið 1996. Þóranna fæddi einnig andvana stúlku og missti á tíma bókaskrifanna annan son sinn. Ríkharður Örn Steingrímsson varð bráðkvaddur í fyrra, aðeins fertugur að aldri. 

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar koma við í þættinum en þingsetning er í dag.

Niðurstöður starfshóps um nýliðun og bætt starfsumhverfi grunnskólakennara í Reykjavík voru kynntar í dag. Vinnan byggir meðal annars á ítarlegri rýnivinnu með kennurum sjálfum um allt land, hvað þeir leggja til að bæta verði. Um 627 milljónum verður varið í að hrinda fyrstu framkvæmdum af stað til viðbótarþeim 670 milljónum sem varið var í ár til að bæta stöðu skólanna.

Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur og Rósa Ingvarsdóttir, fulltrúi Kennarafélags Reykjavíkur í hópnum mæta á Þjóðbraut til Lindu Blöndal. Mikill kennaraskortur er yfirvofandi næsta áratuginn en innritun í kennaranám við HÍ hefur dregist saman um 75 prósent frá 2002.