Missti sína nánustu á 999 dögum

Hugurinn hvarflar aftur um ellefuhundruð ár í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld þar sem rithöfundurinn Vilborg Davíðsdóttir ræðir við kollega sinn Sigmund Erni Rúnarsson um Auði djúpúðgu, einhvern merkasta kvenskörung landnámstímans á níundu og tíundu öld.

Auður er helsta sögupersóna Vilborgar í þríleik hennar um landnámskonuna umtöluðu, ættmóður Laxdæla, en síðasta bókin í flokknum, Blóðug jörð, kom út á dögunum og fylgir þar á eftir bókunum Auði og Vígroða sem komu út fyrir nokkrum árum og fylgja litríkri ævi hennar frá 834 til ársins 900 þegar hún lést í Dölunum.

Það er einkar áheyrilegt að hlýða á Vilborgu segja frá þessari miklu manneskju sem hún hefur rannsakað svo mjög á síðustu árum, en líkindin með því flóttafólki sem yfirgaf Suðureyjarnar svonefndu á Víkingaöldinni og ófriðinn þar og hélt yfir úfið hafið á kænum litlum og langbátum við flóttafólk okkar tíma sem freistar þess að komast frá Asíu og Afríku til Evrópu eru sláandi.

Dauðinn og sorgin er umfjöllunarefni seinni hluta viðtalsþáttarins, en á 999 dögum missti Vilborg eiginmann sinn, föður og ömmubarn svo nísti undan, en það er merkileg upplifun að heyra Vilborgu deila því með áhorfendum hvernig hún hefur tekist á við harminn og hryggðina sem fylgir ástvinamissi.

Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld eins og alltaf á fimmtudagskvöldum á Hringbraut.