Það fer enginn áfallalaust í gegnum lífið, en sumir verða að þola meiri hremmingar og ófarir en aðrir. Það á svo sannarlega við um Sigríði Esther Birgisdóttur sem er gestur Sigmundar Ernis í Örlögunum í kvöld.
Sigríður missti fyrri eiginmann sinn, Sigtrygg Ástvaldsson í vinnuslysi þegar hún var rétt ríflega þrítug kona, þá búin að eignast fjögur börn með manni sínum og taka þátt í uppeldi tveggja eldri dætra Sigtryggs. Börnin tóku þessu reiðarslagi misjafnlega, sýnu verst þó elsti strákurinn, Snorri, en vofveiflegur dauði pabba hans reyndist honum á endanum ofviða. Hann fyrirfór sér á síðasta ári, ríflega þrítugur að aldri.
Sigríður Esther segir sögu sínaa af æðruleysi í kvöld - og þrátt fyrir allt þakkar hún fyrir lífið og allt það sem það hefur gefið henni. Það er mannbætandi að hlusta á hana deila með öðrum sorgum sínum og sigrum.
Örlögin eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.