Missir að vigdísi hauksdóttur

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að vissulega verði missir af Vigdísi Hauksdóttur, en einsog kunnugt er mun hún ekki sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum.

Vigdís sagði, í viðtali í Þjóðbraut, að hún hafi mætt andstöðu við mörg af sínum málum, einnig innan þingflokks Framsóknarflokksins.

Gunnar sagði það eflaust vera rétt. Sjálfur sagðist hann hafa orðið undir með einstaka mál. Þannig væri það bara.

Gunnar óttast ekki stöðu Framsóknarflokksins og sagði flokksmenn vana að mælast illa milli kosninga. „Við verðum dæmd af verkum okkar og ég kvíði engu.“