Misnotuðu mikilvæga þingnefnd

Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í fjárlaganefnd, segir minnihluta nefndarinnar ætli að óska skýringar á tilurð skýrslunnar sem Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauksdóttir kynntu í gær. Þetta sagði Oddný í viðtali við Óðinn Jónsson í Morgunvatkinni á Rás 1 rétt í þessu.

Oddný sagði þar að skýrslan væri ekki unnin í nafni þingsins og ekki í nafni fjárlaganefndar. Þá sagði hún minnihluta nefndarinnar hafa mótmælt að skýrslan yrði unnin. „Þau misnota mikilvæga nefnd þingsins,“ sagði Oddný.

Vigdís Hauksdóttir verður gestur í Þjóðbraut á Hringbraut í kvöld.