Misnotkun á opinberu fé

Orri Hauksson forstjóri Símans telur það óviðeigandi að Reykjavíkurborg ákveði hvar samkeppni í Reykjavík fái að þrífast og hvar einokun hins opinbera skuli ríkja óáreitt. Hér a Orri við framgöngu Gagnaveitu Reykjavíkur á ljósleiðaramarkaði. Þetta félag er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Um þetta er fjallað á vefsíður Vísis.

Stjórn OR svarar ekki bréfi Orra til OR  um þetta mál.  Mun Orri fullyrða í bréfi sínu að ósk Símans um aðgang að kerfi Gagnaveitunnar sé í fullu samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda um að efla skuli og auka samkeppni  í innviðatækni fjarskipta.

Orri hefur sagt að það sé ljóst að Gagnaveitan starfi í andtöðu við bæði samkeppnislög og fjarskiptalög og regluverk innri markaðar  Evrópusambandsins sem innleitt er í íslenskan rétt samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES).

Nánar www.visir.is

[email protected]