Misnota morgunblaðið

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR og fyrrum kosningastjóri Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, sagðist undrandi á framgöngu Morgunblaðsins í kosningabaráttunni.

Hún sagði blaðinnu dreift frítt um allt og mest sé um árásir á Guðna Th. Jóhannesson og hún sagðist viss um að vopnin snúist við í höndum þeirra sem beita því.

Ólafía neitaði að Ólafur Ragnar hafi einnig farið hart gegn sínum keppinautum fyrir fjórum árum. Allt um það sagði Ólafía að það sem þá var gert sé allt annað en nú er uppi.

Frambjóðendur til forseta eiga, segir Ólafía, að draga eigin mynd upp en ekki ráðast að öðrum frambjóðendum.

Einnig var talað að svo virðist sem Davíð sé enn ritstjóri Morgunblaðsins, annað sé ekki hægt að lesa úr haus blaðsins.