\"Á meðan Landspítala var gert að skera niður þjónustu, tækjakaup, viðhald og fjárfestingar á kreppuárunum hefur Landsvirkjun, annað óskabarn þjóðarinnar, fjárfest fyrir 68 milljarða í orkumannvirkjum og greitt niður skuldir um aðra 80 millarða sl. fimm ár.\"
Á þennan veg skrifar Reynir Arngrímsson, formaður Læknaráðs Landspítalans í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, en hún er í raun herhvöt til alþingismanna um að taka af allan vafa í störfum sínum á haustþingi og setja Landspítalann í forgang.
Við lestur greinar Reynis má lesa undrun hans á því hvernig þessum tveimur óskabörnum þjóðarinnar, Landspítala og Landsvirkjun, hefur vegnað frá efnahagshruninu. Annað barnið búi við skort, hitt við ofgnótt, svo lesið sé á milli lína í skrifum læknsins.
Reynir brýnir fyrir fjárlagavaldinu að taka tillit til þeirrar þjóðarsáttar sem augljóslega ríki um að styrkja og efla þjóðarspítalann, jafnt að innviðum sem útveggjum: \"Stærsta og brýnasta hagsmunamál í almannaþjónustu og innri öryggismálum þjóðarinnar er endurbætur á húsnæði Landspítalans,\" skrifar hann og óttast frekari atgervisflótta frá spítalanum verði ekkert að gert.
Hann segir að Íslendingar sem þjóð verði að skoða sameiginleg útgjöld í samhengi - og í því efni verði að hlusta á þjóðina sem kalli eftir svigrúmi til fyrsta flokks læknismeðferðar hér á landi: \"Um þetta ríkir almenn sátt. Nú er komið að Alþingi, sem ekki má láta sitt eftir liggja að tryggja fjármögnun til endurnýjunar húsakosts Landspítalans,\" skrifar Reynir Arngrímsson, formaður Læknaráðs Landspítalans.