Minnstu skólabörnin í hættu við skóla

Leti foreldra og barna þeirra er um að kenna að hættuástand skapast nú daglega á morgnana við suma af skólum landsins. Þessu heldur Birkir Heimisson nemandi í grunnskóla fram í grein sem birt hefur verið á vef Giljaskóla. Vefmiðilinn akureyri.net vakti fyrst athygli á greininni sem lesa má í heild hér.

Í grein Birkis segir m.a. þetta: \"Giljahverfi er eitt best hannaða hverfið á Akureyri þar sem skólinn er í miðju hverfinu og því er aðgengi að skólanum með því allra besta ef ekki besta sem völ er á, á Íslandi. Nemendur sem búa í hverfinu þurfa ekki að fara yfir neinar stórar umferðargötur og ættu því allir að geta gengið í skólann. Það myndi valda mun minni hættu en raun ber, þar sem krakkar á öllum aldri eru keyrðir í skólann oft á síðustu stundu með tilheyrandi stressi og hættu fyrir þá sem velja sér að labba í skólann og þurfa að fara yfir þó þessar hættulitlu götur sem eru í hverfinu,\" skrifar hinn ungi og glöggsýni nemandi.

Hann bætir við:

\"Mér finnst það mjög kjánalegt og foreldrum til skammar að keyra fullfríska krakka í skólann af þeirri einföldu ástæðu að foreldrarnir nenna ekki að vakna aðeins fyrr, og börnin nenna ekki að labba í skólann. Akstur foreldra á skólabörnum í skólann innan um önnur sem fara gangandi er að mínu mati stærsta og alvarlegasta hættan sem börn búa við sem sækja Giljaskóla.\"

Foreldrar og bæjaryfirvöld ættu að bregðast við ástandinu að mati Birkis. \"Ég held að það þurfi smá hugarfarsbreytingu og þá þætti öllum sjálfsagt jafnt foreldrum sem börnum að ganga í skólann. Hættan af óþarfa akstri við Giljaskóla er alltaf lang mest fyrir yngstu nemendurna sem sumir hverjir standa ekki út úr hnefa og eru því illsjáanlegir þegar þeir skjótast á milli bíla og sum svo lágvaxin að það er ekki nokkur leið fyrir bílstjóra að sjá þau í baksýnisspeglinum.\"