Minnst níu tegundir kynhneigðar til

Nútímasamfélögin eru orðin æði litrík af alls konar kynhneigð sem fæstir höfðu hugmynd um að væri til fyrir fáeinum árum, hvað þá áratugum, en með auknu frjálslyndi og upplýsingu er kynhneigðar-listinn orðin býsna langur.

Samkynhneigð er vitaskuld á allra vitorði og þykir enda ekkert tiltökumál að karlar og konur komi út úr þeim skápnum. Þá er tvíkynhneigð líka býsna kunn, en hún gildir um það fólk sem hneigðist bæði til karla og kvenna. Og transfólk hefur á síðustu árum einnig verið áberandi í umræðunni, en það er fólk sem fæðist í líkama rangs kyns og gengst oft undir kynleiðréttingu.

Aðrar hinsegin útgáfur eru aftur á móti öllu óþekktari, svo sem eins og fjölelskandi fólk, en það takmarkar sig ekki við sambönd með einum einstaklingi og vill hafa fleira fólk í kringum sig þegar kemur að því verklega. Þá má nefna alkynhneigða sem hafa áhuga á hverjum sem er, óháð kyni. Einnig eru til kynflæðandi einstaklingar, en þeir upplifa sig af mismunandi kynjum á mismunandi tímum. Ónefndir eru þá ókynjaðir einstaklingar sem upplifa sig ekki af neinu kyni, hvorki karlkyni, kvenkyni, né nokkru öðru kyni. Loks eru til ókynhneigðir einstaklingar, en þeir hneigjast einfaldlega ekki til kynlífs með öðrum.

Og þá er líklega aðeins ein kynhneigð eftir. Hún er kannski sú allra skrýtnasta þegar upp er staðið. Og kallast gagnkynhneigð.