Gísli Guðjónsson, réttarsálfræðingur og prófessor emeritus við King's College í Lundúnum og prófessor við Háskólann í Reykjavík, hefur sett mark sitt á yfir þúsund sakamál.
Fjölda refsidóma hefur verið hrundið eftir aðkomu hans og minnst fjórir fangar sem beðið hafa dauðarefsingar eiga honum líf sitt að þakka.
Gísli ræddi málin í helgarviðtali í Helgarblaði Fréttablaðsins.
Gísli fór á eftirlaun fyrir áratug en er enn á fullu en í dag velur hann málin sem hann tekur vandlega. Hann er af mörgum talinn eiga mestan þátt í því að Guðmundar- og Geirfinnsmál voru endurupptekin.
Fréttablaðið greindi frá máli hinnar dauðadæmdu Melissu Lucio í vor en ríkisstjóri Texas sló aftöku hennar á frest ótímabundið í kjölfar greiningar Gísla á játningu hennar.
Mörg þeirra mála sem Gísli hefur komið að hafa hlotið heimsathygli og má þar nefna mál Henry Lee Lucas í Texas, sem fjallað er um í heimildarmyndinni The Confession Killer og hryðjuverkamálin frægu frá Birmingham og Guildford í Bretlandi, sem Óskarsverðlaunamyndin In the Name of the Father byggir á.
Gísli segir forvitnina liggja að baki ástríðunnar. „Í öllum málum sem ég hef tekið að mér hef ég spurt mig: Hvað hef ég lært af þessu máli? Hvað get ég gert betur og kennt öðrum með því að skrifa greinar um málið?“ segir Gísli og fullyrðir að hvert einasta mál hafi haft þýðingu fyrir fræðin.
Viðtalið við Gísla má lesa í heild sinni hér.