Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll voru um 147 þúsund talsins í apríl síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða sex þúsund færri en í apríl á síðasta ári.
Fækkunin nemur 3,9% milli ára en leita þarf aftur til ársins 2010 til að merkja fækkun á milli ára. Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í apríl en þeim fækkar nokkuð.
Minni hlutfallsleg aukning er nú milli ára fyrir tímabilið janúar-apríl í samanburði við fyrri ár. Frá áramótum hafa um 628 þúsund erlendir farþegar farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 3,7% aukning miðað við sama tímabil í fyrra, samanborið við 55,7% milli ára 2016-17.