Minnisblað nemendafélags: „Ekki bóka Ingó á ball“

Tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð hefur ekki verið ráðinn á skólaball í Borgarholtsskóla í átta ár. Þetta kemur fram í tísti frá nemendafélagi skólans.

Vísir hefur eftir formanninum, Jóni Bjarna Snorrasyni, að frá skólaárinu 2012-2013 hafi verið til óformlegt reglublað á skrifstofu skólafélagsins og í því standi: „Ekki bóka Ingó á ball“.

Í sömu frétt Vísis segir Inspector scholae í Menntaskólanum í Reykjavík að hegðun tónlistarmannsins hafi verið í umræðunni lengi og haqnn verði aldrei bókaður á skemmtun í skólanum.

Rætt er einnig við Samband íslenskra framhaldsskólafélaga í fréttinni sem kannast ekki við bannlista. Þá kannast forsvarsmenn Íþrótta- og tómstundaráðs borgarinnar ekki heldur við slík bönn hjá félagsmiðstöðvum borgarinnar.

Ingó hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna ásakana um kynferðislega áreitni og ofbeldi í garð ungra kvenna. Hann hefur lýst því yfir að hann muni leita réttar síns vegna ásakana í hans garð.