„Grettir er mjög skáldmæltur og hann er mjög orðheppinn“, segir Einar Kárason sem mun segja sögu Grettis Ásmundarsonar á söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Einar heldur sögustund í sjöunda sinnið, það er Grettissaga er sjöunda sögusýningin hans á loftinu.
Aðspurður hvaða samtímamaður hann gæti verið, ef Grettir væri uppi núna, hvar og hvernig væri hann segir Einar að hann teldi Gretti myndi vera í einhvers konar skáldskap en þó töffara: „Það er mjög auðvelt að sjá hann fyrir sér í góðu rokkbandi, vera svona framlínumaðurinn“
„Hann er með svona tilsvör eins og við þekkjum frá Keith Richards“.