Minnihlutinn telur að svik verði framin

Nefndadagar standa á Alþingi fram til 28 apríl. Því liggur fyrir að ekki verða næst þingfundir fyrr en þann dag. Á sama tíma og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra náði minnihlutanum á sitt samstarfsband með sameiginlegum fundi um daginn með loforði um að að senn lægi fram málaskrá sem og að kjördagur í haust yrði kynntur, virðist nú sem hlaupin sé snurða á þráðinn.

Minnihlutinn túlkar þá pattstöðu sem hún telur uppi með því að hvorki liggi kjördagur fyrir né málaskrá sem svo að svik séu í vændum. Að ekki standi til að láta kjósa í haust. Mörg stór orð féllu á þingfundi í dag vegna stöðunnar sem komin væri upp.

\"Þetta gengur ekki upp í mannlegum samskiptum,\" sagði Steingrímur J. Sigfússon sem telur tímabært að Sigurður Ingi Jóhannsson viðurkenni að það hafi verið mistök að \"hanga á völdunum\". Ósamstaða virðist um forgangsmál innan stjórnar og mál séu öll upp í loft.

Sigurður Ingi, afmælisbarn dagsins, var harðlega gagnrýndur fyrir að minnihlutinn hefði verið misnotaður hvað traust varðaði með því að ætlast til samvinnu án þess að nokkuð lægi enn fyrir um dagskrá. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fer fram á að fallið verði frá nefndardögum uns niðurstaða um mál og kosningadag liggi fyrir.

Árni Páll Árnason kallar stöðuna brandara. Sigurður Ingi vísar því á bug að loforð verði svikin. Hann segist ætla að hitta fulltrúa minnihlutans á fundi næsta föstudag og þá muni staðan upplýsast.