Halldór Haldórsson, sem er fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, núverandi oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík og formaður Sambands sveitarfélaga, segir það merka lífreynslu að sitja i minnihluta.
Halldór segir minnihuta eiga erfitt uppdráttar og fá mál frá honum, ef einhver, nái fram í borgarstjórn. Aðkoma minnihlutans vegur eitthvað í nefndarstarfi en ekkert þegar kemur að flutningi eigin mála í borgarstjórn.
Halldór var í viðtali á Hringbraut, þar sem þetta kom meðal annars fram og eins að svipað hafi verið í bæjarstjórn Ísafjarðar þegar hann var þar bæjarstjóri.
Hér er hægt að horfa á viðtalið:
http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/thjodbraut/halldor-halldorsson/