Minni vöxtur kortaveltu

Í maí sl. nam erlend greiðslukortavelta 21,3 milljörðum króna. Þessi velta nam 19,9 milljörðum króna í maí í fyrra.

Hlutfallasvöxtur frá fyrra ári er því um 7,1% og hefur ekki verið minna frá Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) við Háskólann á Bifröst hóf söfnun hagtalna um kortveltu erlendra ferðamanna árið 2012.

Í krónum jókst kortaveltan um 1,4 milljarða króna frá maí í fyrra. Meginástæðan fyrir minni kortaveltu er vafalítið sterkt gengi króunnar.

Frá þessu segir í frétt frá RSV.

rtá