Í maímánuði dróst erlend kortavelta án flugsamgangna saman um 13,1% á milli ára og nam 16,2 milljörðum króna. Hlutfallsleg lækkun í kortunum er nokkuð minni en fækkun ferðamanna samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia en hún var 24% frá sama mánuði í fyrra.
Fall WOW air er vafalaust stærsti einstaki þátturinn sem veldur lækkun kortaveltunnar frá fyrra ári. Tölur Rannsóknasetursins sýna kortaveltuna án flugsamgangna og mæla því ekki bein áhrif minni miðakaupa þess flugfélags heldur þau óbeinu áhrif sem felast í fækkun ferðamanna.
Gengi krónunnar hefur veikst um u.þ.b. 12% frá maí í fyrra. Innlendar ferðaafurðir sem seldar eru í krónum eru því þeim mun ódýrari í augum erlendra ferðamanna en fyrir ári síðan. Sé lækkun kortaveltunnar í mánuðinum reiknuð í erlendri mynt lætur nærri að hver ferðamaður hafi að eytt svipaðri fjárhæð hérlendis samanborið við maí í fyrra. Í íslenskum krónum jókst aftur á móti kortavelta á hvern ferðamann um 13,6%.
Verulegur hluti þess sem útlendingar greiða fyrir hérlendis með kortum sínum fer í gegn um netsölu. Sá hluti er oftar en ekki pöntun fram í tímann á þjónustu sem neyta á síðar. Það er því athyglisvert að skoða netsöluna í maí síðastliðnum sérstaklega enda gæti hún gefið vísbendingar um sumarið. Samdráttur í kortaveltu í gegn um posa nam tæplega 17% en samdráttur um net var rúmlega 5%. Stærsti flokkurinn í netsölu, bæði hlutfallslega og mælt í veltu er ýmis ferðaþjónusta en hann inniheldur afþreyingaferðir, ferðaskipuleggjendur og álíka. Um 70% kortaveltu flokksins kemur í gegn um netið (2,5 ma.kr.) og dróst sá hluti einungis saman um tæpt eitt prósent frá fyrra ári, samanborið við ríflega 16% samdrátt sama flokks í gegn um posa. Gæti þetta verið til marks um að hlutfallslegur samdráttur verði minni þegar líður á sumarið en raungerðist í maí.