Landsvirkjun hefur aldrei selt meira magn af rafmagni en árið 2015. Eftirspurn eykst stöðugt og er nú meiri en sem nemur framleislugetu. Þetta sagði Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar á uppgjörsfundi í gær.
Hann sagði afkomuna góða í krefjandi markaðsumhverfi. Skuldir haldi áfram að lækka. Nettó skuldir hefðu lækkað um 205m USD milli 2014 og 2015 í fyrsta skipti undir 2.000m USD síðan 2005.
Einnig kom fram í máli Harðar að mikil eftirspurn væri eftir orku á heimsvísu í breyttu landslagi orkumála. Ræddi hann í þeim efnum ógn við orkuöryggi þjóða. Orkuverð væri nú tímabundið lágt á heimsvísu en færi hækkandi til framtíðar. Þá væri vaxandi mengun vandi.
“Landsvirkjun getur ekki annað heildareftirspurn iðnaðar eins og sakir standa,” sagði Hörður. Áhætta og verð stýri hvaða fyrirtæki fái raforku. Nýir viðskiptavinir, stórnotendur, væru að hefja rekstur, United Silicon 35 MW árið 2016 og PCC 58 MW árið 2017. Vöxtur í sölu til gagnavera væri mikill en sá markaður væri nú innanlands um 30 MW Almennur markaður vaxi um 6 - 12 MW á ári sem jafngildi um einni jarðvarmatúrbínu á fimm ára fresti .
Grunnrekstur Landsvirkjunar er stöðugt að batna eftir því sem fram kom í máli Harðar. Hann sagðist vona að hægt yrði að auka arðgreiðslur eftir 2-3 ár. Stefnt væri að því að hækka arðgreiðslur úr 1,5 í 10-20 milljarða króna á ári.