Hagsjá Landsbankans kom út í dag. Þar má við fyrstu sýn greina hækkun á fasteignaverði eftir nokkura mánaða stöðnun. Þegar betur er skoðað sést að hækkunin er einkum fólgin í því að hlutfall nýrra íbúða á tímabilinu sem skoðað er er hærra en áður.
Þá verður það að teljast góðar fréttir að meðalstærð íbúða er á niðurleið. Það bendir til þess að verktakar séu að mæta eftirspurn eftir minni íbúðum, sem lengi hefur vantað á markaðinn fyrir kaupendur fyrstu íbúðar.