Má ekki ganga að vilja sjálstæðisflokks

Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði í Þjóðbraut á mánudagskvöld, að minni flokkar verði að gæta sín á Sjálfstæðisflokki, gæta þess að ganga ekki að vilja Sjálfstæðisflokksins. „Sjálfstæðisflokkurinn er ekki þannig að hann gefi ekkert eftir,“ svaraði Brynjar Níelsson.

Brynjar sagði að ekki verði mynduð traust ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins.

Björt sagði að bæði Björt framtíð og Viðreisn hafi ekki bara þá skyldu að axla ábyrgð í ríkisstjórn. Flokkar hafi ekki síður skyldur gagnvart kjósendum. „Við verðum að standa við það sem við sögðum.“ Björt sagði að hugsanlegt stjórnarsamstarf þurfi að taka mið af því sem sagt var, „...okkar mál verða að vera sett á oddinn.“

Brynjar talaði um hvaða mál hann telur mikilvægust á nýju kjörtímabili. Hann nefndi ríkisfjármál og stöðugleika á vinnumarkaði. „Við þurfum trausta stjórn á ríkisfjármálum. Við megum ekki missa tökin á þeirri stöðu sem við erum með. Það er auðvelt að missa tökin.“

Fréttin er uppfærð og lítillega breytt frá mánudeginum 7. nóvember.