Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Píratar bæta við sig fylgi en Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð tapa stuðningi frá því í liðnum mánuði. Fylgi Pírata eykst um næstum þrjú prósentustig frá marsmánuði á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar um nær þrjú prósentustig.
Ef gengið yrði til kosninga í dag segjast liðlega 13 prósent myndu kjósa Pírata sem er þremur prósentustigum meira en í síðustu mælingu og rösklega 26 prósent mynd kjósa Sjálfstæðisflokkinn miðað við 29 prósent í síðasta mánuði.
Fylgi Bjartrar framtíðar lækkar. Rúmlega 4 prósent segjast myndu kjósa flokkinn nú miðað við 6 prósent í marsmánuði. Það er svipað og stuðningur við Flokks fólksins sem tæplega 4 prósent styðja. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða ekkert. Slétt 24 prósent segjast myndu kjósa Vinstri græn, um 11 prósent Framsóknarflokkinn, rösklega 8 prósent Samfylkinguna og tæp 7 prósent Viðreisn.
Fylgi við ríkisstjórnina dregst saman um tæp 3 prósentustig milli mánaða. Tæplega 38 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Um er að ræða netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. mars til 1. maí síðastliðinn.