Íbúar á Vesturlandi og innsveitum Norðurlands geta verið sælir og glaðir því allt að 18 stiga hiti verður á þeim slóðum næstu daga, en einna svalast verður um norðaustanvert hornið í þokulofti og þungskýjuðu veðri.
Norðan- og norðaustlægar áttir eru í kortunum sem bitna hvað harðast á austfirðingum og íbúum austan Öxarfjarðar, en svo gæti farið að á þeim slóðum fari hiti allt niður í þrjár gráður um og undir næstu helgi, sem telst vart til sumarhita.
Almennt er það svo að veður fer heldur kólnandi þegar líða tekur á vikuna og er vart hægt að búast við meira en 13 gráðu hámarkshita á föstudag, laugardag og sunnudag um sunnan- og vestanvert landið, sem á þá að kallast heitasta svæði landsins.