Milljónir kvenna á Spáni tóku þátt í kvennafrídegi þar í dag á alþjóðlegum degi kvenna. Konur víðsvegar um Spán lögðu niður vinnu til að krefjast launajafnréttis og virðingar. Samkvæmt upplýsingum verkalýðsfélaga tóku 5,3 milljónir kvenna þátt í þessu 24 stunda verkfalli, sem á sér ekki fordæmi, nema kannski einna helst í Kvennafrídeginum á Íslandi 24. október 1975, sem hefur verið rifjaður upp í fréttum dagsins.
Þar að auki tóku hundruð þúsunda spænskra kvenna þátt í mótmælagöngum um land allt.
Um allan heim var efnt til margháttaðrar dagskrár í tilefni alþjóðadags kvenna.