Dagur B. Eggertsson borgarstjóri verður gestur Þjóðbrautar í kvöld. Þar segir hann að milljarður, sem innheimtist hugsanlega með gistináttagjaldi sé ekki baunir, líkt og Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra sagði í þættinum á sunnudag.
Dagur segir að nú skili gistnáttagjaldið um 650 milljónum króna, ekki aðeins 250 einsog ráðherra sagði. Dagur sagði ekkert því til fyrirstöðu að hækka gjaldið og að veita mætti því til sveitarfélagnna.
Dagur segir Reykjavík beri meiri kostnað af ferðafólki en sem nemur þeim tekjum sem borgin fær þess vegna.
Eins er borgarstjóri ósáttur með hversu lítið borgin, og reyndar höfuðborgarsvæðið allt, fá úthutað úr framkvæmdasjóðum vegna ferðaþjónustunnar.
Viðtalið við Dag verður á dagskrá klukkan 21:30 í kvöld.