Milljarðar eiga að sparast

Guðlaugur Þór Þórðarsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður sjálfstæðisflokksins bendir á að útboð vegna innkaupa opinberra stofnana eigi að vera miklu fleiri þegar um er að ræða vöru sem er einsleit, svo sem rafmagn og ýmis almenn tæknimál. Í dag selji t.d. fleiri en einn aðili aðgang að rafmagni. Hann segir að ganga þurfi harðar að stjórendum opinberra stofnana um hvort nógu vel sé gert í útboðsmálum í stað þess að taka undir kvartanir þeirra um fjárþurrð. Mjög lítill hlut opinberu innkaupanna fari í gegnum Ríkiskaup og benti Guðlaugur sérstaklega á hlut Landspítalans í þeim efnum. Ríkisendurskoðun hafi þá skrifað margar skýrslur um að úrbóta sé þörf.

Guðlaugur Þór hefur um langa hríð rætt úboðsmál ríkisstofnana. Hvernig hægt er að spara skattgreiðendum háar fjárhæðir í þessum efnum.

Kannanir fjárlaganefndar hafa sýnt að af 160 ríkisstofnunum hefðu innan við 50% boðið út innkaup. Hjá þeim væru 1,3 til 45,6% af innkaupum boðin út eftir vöru- og þjónustuflokkum. Oft væru augljós tækifæri til sparnaðar ekki nýtt, eins og að bjóða út innkaup á rafmagni sem væri algjörlega einsleit vara. Aðeins 7,5% stofnana hefðu boðið út innkaup á rafmagni.

Guðlaugur ræðir þetta í Umræðunni á Hringbraut í kvöld kl.21:45 og svarar m.a. því hvort formaður fjárlaganefdnar, Vigdís Hauksdóttir gangi of langt í því að gera stjórnendur opinberra fyrirtækja tortryggilega.