Úttekt II
Stundum birtast í blöðum merkilegar greinar, sem verðskulda að vera rifjaðar upp. Þannig er um grein sem hér skal rifjuð upp af marggefnu tilefni, þetta er úr DV, mánudaginn 13. ágúst 2012, bls. 2, og fjallar um milljarðatap vegna hlutafélagsins Vafnings og aðkomu Bjarna Benediktssonar, efnahags- og fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins að málinu. Greinin er skrifuð af Baldri Eiríkssyni blaðamanni. Fyrirsögnn er \"Firrir sig ábyrgð á milljarðatapi. Undirfyrirsögn: Segir Steingrím J. bera ábyrgð á tapi ríkisins vegna björgunar Sjóvár.
Í greininni er rammagrein sem er samantekt um aðkomu Bjarna að tapi ríkisins vegna björgunar Sjóvár. Rammagreinin hefur fyrirsögnina: Svona var aðkoma Bjarna. Rammagreinin er hér í heild:
\"Aðkoma Bjarna Benediktssonar að málinu var sú að í lok febrúar 2008 skrifaði hann undir veðsetningarskjöl fyrir hönd föður síns og frænda þar sem eignir vafnings voru veðsettar fyrir láni frá Glitni. Bjarni segir frá því í viðtali við DV í árslok 2009 þegar fjallað var um aðkomu hans að Vafningsmálinu í blaðinu að hann hefði veðsett hlutabréfin í Vafningi hjá Glitni fyrir hönd föður síns og frænda þar sem þeir hefðu verið staddir erlendis. \"Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyrir sína hönd að skrifa undir ákveðinn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félaginu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu.\" Bjarni skrifaði því undir veðsetningarskjölin fyrir hönd eignarhaldsfélags föður síns, Hafsilfurs, eignarhaldsfélags Einars Sveinssonar, Hrómundar, sem og fyrir eignarhaldsfélagið BNT, móðurfélag olíufélagsins N1, en fyrirtækið var í eigu ættingja Bjarna. Samtals fékk vafningur um 15 milljarða króna lánaða frá Glitni en milljarðarnir voru endurlánaðir til eignarhaldsfélagsins Þáttar International, sem einnig var í eigu Milestone og Einars og Benedikts Sveinssona. Þáttur International var einn stærsti hluthafi Glitnis. Þáttur International notaði peningana svo til að endurgreiða bandaríska fjárfestingarbankanum Morgan Stanley lán sem félagið fékk til að kaupa hlutabréf í Glitni árið 2007. Morgan Stanley átti veð í hlutabréfum Þáttar International í Glitni og hótaði að leysa bréfin til sín í veðkalli ef skuldin yrði ekki greidd til baka. Vafningur tók einnig við lánum frá Sjóvá sem notuð voru til að endurfjármagna lán hjá Morgan Stanley vegna fjárfestingar Milestone í sænska fjármálafyrirtækinu Invik.
Með þessum lánveitingum út úr Sjóvá til Vafnings var gengið á bótasjóð félagsins með þeim afleiðingum sem greint er frá hér að framan. Í báðum tilfellum fóru lánin frá Sjóvá og Glitni út úr íslenskum félögum og íslenska hagkerfinu og yfir í bandarískan fjárfestingarbanka. Krafa Sjóvár á hendur Vafningi var svo afskrifuð í ársreikningi SJ eignarhaldsfélags, sem áður hét Sjóvá, fyrir árið 2009 en þar segir: \"Niðurfærsla viðskiptakrafna vegna Földungur ehf. og Milestone ehf. 29.287.037.\" Afskriftirnar vegna lánanna út úr Sjóvá til vafnings og Milestone námu því rúmlega 19 milljörðum króna. Heildarskuldir Vafnings, nú Földungs, voru tæpir 38 milljarðar í árslok 2010 og var um helmingur vegnalána frá Sjóvá og helmingur vegna lána frá Glitni. Sjóvá og Glitnir töpuðu því þeim um 38 milljörðum króna sem lánaðir voru til Vafnings árið 2008 eftir að byrjaði að harðna á dalnum í íslenska fjármálakerfinu.\"
Megininntak þessarar DV greinar er að öðru leyti tvíþætt. Annars vegar vísar Bjarni Benediktsson á bug allr ábyrgð á nokkru varðandi umrædda fjármálagjörninga. Hins vegar skammar hann blaðamanninn og vísar honum á að tala við Steingrím J. Af því tilefni má rifja upp að Bjarni var stjórnarformaður eða stjórnarmaður og/eða hluthafi í þeim félögum sem að málinu koma, eins og áður hefur verið rifjað upp hér á Hringbraut.
Kannski hefur það verið um þetta leyti sem DV birtir umrædda grein að BB gerir sér grein fyrir hvernig hann ætti að tækla svona erfið mál. Hann ber sig landsföðurlega, er algjörlega ákveðinn, talar niður til blaðamannanna sem venjulega eru talsvert yngri og \"lægra settir\" og jafnvel skammar þá, setur ofaní við þá, þeir lyppast niður og hann heldur keikur áfram. Þetta gerir hann enn, enginn fjölmiðlamaður þorir lengur að hjóla í hann og tækla hann með staðreyndum.