Milljarða tap á álverinu í straumsvík

All­ir starfs­menn ál­vers­ins í Straums­vík fengu í gær sent bréf frá for­stjóra þar sem farið var yfir af­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart kjaraviðræðunum og rekstr­ar­erfiðleik­um fyr­ir­tæk­is­ins lýst.

Í bréfinu er sagt að langvarandi taprekstur hafi verið á starfsemi álversins í Straumsvík svo nemi mörgum milljörðum króna, en Rannveig Rist forstjóri þess hefur látið í veðri vaka að undanförnu að mögulega komi til lokunar álversins á næstunni. 

Ólaf­ur Teit­ur Guðna­son, upp­lýs­inga­full­trúi RioT­into á Íslandi, seg­ir að bréfið hafi verið sent út til þess að upp­lýsa starfs­menn um af­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins og það sé skyn­sam­legt að starfs­menn hafi eins mikl­ar upp­lýs­ing­ar und­ir hönd­um og hægt sé.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Gylfi Ingvars­son, talsmaður verka­lýðsfé­lag­anna í Straums­vík, að um áróður sé að ræða og að stjórn­end­ur séu að láta slæm­ar ákv­arðana­tök­ur sín­ar koma niður á starfs­mönn­um.