Millistjórnandi ársins

Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, var á dögunum valin millistjórnandi ársins hjá stærsta stjórnunarfélagi á Íslandi, Stjórnvísi. Fyrirtækið hefur skorað mjög hátt í Íslensku ánægjuvoginni á undanförnum árum en ekki síður í mælingum varðandi ánægju starfsfólks á vinnustöðum. Sigrún er í skemmtilegu spjall um stjórnun og vínbúðirnar við Jón G. Hauksson í þætti hans í kvöld. Um 2 þúsund tegundir af víni fást núna í stærstu Vínbúðunum. „Ekkert skiptir meira máli við stjórnun en að hafa samskiptafærni og áhuga á fólki. Öðru vísi næst ekki að byggja upp góð liðsheild. Ánægja starfsmanna skilar sér í ánægðum viðskiptavinum,“ segir Sigrún Ósk.