Tignarlegir gufubólstrar hafa undanfarnar sést stíga frá Holuhrauni en eldgosinu lauk sem kunnugt er 27. febrúar síðastliðinn og þó svo bólstrarnir séu til merkis um hitann í jörðu eru engin merki eru um að nýtt gos sé hafið.
Að því er fram kemur á heimasíðu Veðurstofunnar hefur vatnsflaumur á Flæðunum aukist um þessar mundir eins og heita má eðlilegt þegar allt það mikla snjómagn sem legið hefur yfir hálendinu er byrjað að bráðna. Vatnið kemst í snertingu við norðausturjaðar Holuhrauns og veldur þessari bólstramyndun. Gufubólstrar sjást einnig á gígasvæðinu en þar streymir að leysingavatn undan vestanverðum Dyngjujökli. Líklegt er að gufubólstrar sem þessir muni sjást áfram.
Meðfylgjandi mynd var tekin úr Kverkfjöllum þann 9. júní 2015 í vorferð Jöklarannsóknarfélagsins, en búast má við fjölda ferðafólks á þessu svæði á næstu vikum eftir að vegir verða opnaðir inn til landsins. Heimilt er að fara að Holuhrauni en svæðið var sem kunnugt er lokað af um langa hríð á meðan á eldsumbrotunum stóð.