Miklar hitasveiflur munu einkenna veðurfarið á landinu næstu daga, eða allt fram undir næstu helgi, en þá sveiflast hitinn allt frá 21 gráðu niður í 3 gráður á Vestfjörðum á föstudag. Svalt verður um mest allt land um næstu helgi.
Íbúar um norðan- og norðaustanvert landið geta glaðst í dag, en austlægar áttir færa þeim talsverð hlýindi, eða allt upp undir 21 gráðu, en á meðan verður þokusúld og rigning um allt vestanvert landið, frá Vestfjörðum og niður á allan Reykjanesskagann.
Hlýindin halda að mestu leyti áfram á þriðjudegi, þó einna síst í norðausturhorni landsins og á Austfjörðum þar sem þokalofts gætir, en á því svæði mun svo rigna á miðvikudag þegar hlýindin verða hvað mest um sunnan- og suðvestanvert landið, allt að 18 stig.
Á fimmtudag fer að kólna í veðri, einkum á Vestfjörðum þar sem búast má við 6 stiga hita á meðan lofthiti verður enn um 15 gráður á höfuðborgarsvæðinu. Enn kólnar svo á föstudag á Vestfjörðum og væntanlega snjóar þá í fjöll, enda ekki gert ráð fyrir meira en 3ja gráðu hita.
Svalt verður um mest allt land um næstu helgi.