Seinni þátturinn í tveggja þátta seríu Hringbrautar um sjónina og augnlækningar var á dagskrá í gærkvöld, en þar verður fjallað um augasteinaaðgerðir og meðferð vegna krankleika í augnbotnum. Þátturinn verður endursýnddur í dag og einnig sjáanlegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.
Óhætt er að segja að fyrri þátturinn hafi vakið athygli, en þar var fjallað um laseraðgerðir og meðferð við augnþurrki, en gríðarlegar framfarir hafa orðið í augnlækningum á síðustu árum, svo mjög reyndar að líkja verður við byltingu og sviði meðferðar og tækni.
Þættirnir sýna öðru fremur hvað þjónusta á þessu mikilvæga sviði heilbrigðsvísinda er orðin fjölþætt og markviss - og hvað lífsgæði fólks á öllum aldrei geta aukist að miklum mun í krafti oft einfaldra og fljótlegra aðgerða.
Í þættinum í gærkvöld var rætt við augnlæknana Jóhann Ragnar Guðmundsson og Óskar Jónsson, svo og augnhjúkrunarfræðinginn Sigurlaugu Guðrúnu Gunnarsdóttir og annað fagfólk hjá augnlæknastofunni Sjónlagi í Glæsibæ - og auk þess við þær Maríu Þorleifsdóttur og Ingu Önnu Gunnarsdóttur sem notið hafa þjónustu stofunnar með miklum og eftirtektarverðum árangri.
Fyrri þáttur af Sjóninni verður svo endursýndur næsta mánudagskvöld klukkan 21:30.