Greiðslumatið á að vera fyrir neytendur en spurningin er hvort bankarnir séu að nýta sér regluverkið? Um þetta er meðal annars rætt í þættinum Afsal í kvöld.
Í þættinum sem sýndur er á Hringbraut verða gestir ráðstefnuhaldarar Fasteignaráðstefnunnar 2016 og nokkrir sem þar munu halda erindi. Fasteignaráðstefnan er haldin í fyrsta sinn og mun standa yfir í heilan dag í Hörpu, þann 25.febrúar næstkomandi. Þar munu allir hagsmunaaðilar fasteignamarkaðarins hittast.
Rakel Sveinsdóttir, umsjónarmaður þáttarins Afsal, segir að ljóst sé á dagskrá ráðstefnunnar að fjölmargir aðilar séu að boða einhverjar breytingar á húsnæðismarkaði.
Í kvöld segir Anna María Bogadóttir arkitekt frá því í þættinum, að húsnæði muni mjög líklega breytast í framtíðinni. Þá ræða Ármann Kr Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og Gunnhildur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íbúðalánasjóðs, um þá aðstoð sem fólk fái við fyrstu kaup. Þar kemur til bæði greiðslumat og lánshlutfall fyrir fyrstu kaupin. Rifjar Ármann upp þann tíma þegar hann var ungur og fólk gat með ýmsum hætti komist í gegnum þann skafl sem fyrstu kaupunum fylgdi.
Gunnhildur segir Íbúðalánasjóð nú leggja meiri áherslu á óháða ráðgjöf fyrir fólk vegna húsnæðismála. Það er ekki aðeins vegna eignakaupa, heldur einnig fyrir þá sem vilja leigja. Aðalmálið sé að fólk sé upplýst um hvaða valkostir eru í stöðunni og hvaða leiðir henti þeim best. Til að mynda geri löggjöfin ráð fyrir miklu svigrúmi, til að aðlaga greiðslumöt að þeim heimilisrekstri sem best á við, til dæmis hjá leigjendum.
Spurningin sé hins vegar hvort fólk nýti ekki sveigjanleika sem skyldi, vegna þess að það fær ekki upplýsingar um hvað sé hægt að gera. Íbúðalánasjóður sé í dag með mjög lítið hlutfall lánveitenda húsnæðislána en lífeyrissjóðirnir hafi komið sterkir inn á þann markað.
Þá eru sveitarfélög eins og Kópavogur að stíga róttæk skref til að liðsinna fólki við íbúðarkaup og að stýra betur hvernig byggt er á nýjum lóðasvæðum.
Þátturinn Afsal er á dagskrá í kvöld kl.21.00 og í endursýningu kl.23.00 og um helgina.