Óttast er að allt 700 manna hafi farist þegar yfirfullum flóttamannabáti hvolfdi á Miðjarðarhafi í morgun. Þetta er enn eitt mannskæða slysið á svæðinu á síðustu mánuðum eftir að bylgja flóttamanna sem freistast þess að komast yfir hafið varð að brimskafli. Talið er að þúsundir flóttamanna liggi nú þegar í votri gröf á botni Miðjarðarhafsins, en flestir þeirra höfðu greitt smyglurum aleigu sína áður en lagt var út á hafið á lélegum bátskriflum sem sumir hverjir halda ekki vatni þegar komið er út á rúmsjó.
Skipverjar á varðskipinu Tý hafa verið í miðju þessarar atburðarrásar síðustu daga, en Frontex, landamærastofnun Evrópu, hefur skipið og áhöfn þess á leigu við eftirlit á svæðinu. Að sögn skipverja hafa annir þeirra verið með ólíkindum; hvert verkefnið hafi rekið annað - og fólkið sem bjargað hafi verið um borð í Tý einan skipti hundruðum nú þegar.
Evrópusambandið hefur nú boðað til neyðarfundar vegna sífellt þyngri flóttamannastraums flóttamanna frá norðanveðri Afríku yfir til Evrópu.
Í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á miðvikudag verður fjallað um þetta málefni með aðstoð sérfræðinga og fulltrúa Landhelgisgæslunnar, en víst er að ekki sér fyrir endann á þessum miklu fólksflutningum milli álfanna sem liggja hvor sínu megin Miðjarðarhafs.