Á félagsfundi Lögreglufélags Vestfjarða í gærkvöld var ályktað um bága stöðu lögreglunnar þar vestra. „Lögreglufélag Vestfjarða skorar á núverandi og væntanlega ríkisstjórn að ljúka ófrágengnum málum frá gerð kjarasamninga haustið 2014.“
Lögreglumennirnir eru ekki hrifnir af hugmyndum stjórnvalda að afglæpavæða vörslu á fíkniefnum til einkaneyslu. Lögreglan skorar á stjórnvöld að koma í veg fyrir að heimila neyslu ólöglegra fíkniefna, sem þeir segja meira um nú en áður.
Lögreglan hefur þungar áhyggjur á stöðu löggæslumála í landinu. „Á sama tíma og íbúum fjölgar og fjölgun ferðamanna stór eykst ár hvert, allt árið um kring, fækkar lögreglumönnum og fjárheimildir minnka til muna. Þetta hefur gert það að verkum að vinnuálag lögreglumanna hefur stóraukist, rekstrarumhverfi ökutækja lögreglu minnkað og heldur ekki verið hægt að endurnýja bílaflota lögreglu með öryggissjónarmið lögreglumanna að leiðarljósi.“
Minnt er á skýrslu sem gerð var á vegum innanríkisráðuneytisins um eflingu löggæslu til ársins 2017, en í henni var stefnt að fjölgun lögreglumanna á landinu. Það hefur ekki gengið eftir og er langt í land að svo verði með áherslum núverandi ríkisstjórnar.