Mikilvægt að ísskápur skilji íslensku

„Þetta snýst ekki bara um tölvur og síma. Innan tíðar byrjum við daginn með því að tala til ísskápsins. Þetta er veruleiki okkar tíma. Spurningin er bara þessi: Hvaða mál skilur ísskápurinn? Skilji snjallbúnaður heimilistækjanna ekki íslensku hættum við einfaldlega að tala hana í önn dagsins,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra í nýjum pistli á Hringbraut. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gerði íslenskuna og þessi mál að umfjöllunarefni í ræðu um helgina.

Þorsteinn segir mikilvægt að ræða stöðu íslenskunnar og hrósar stjórnmálamönnum sem í ræðum m.a. á landsfundum um helgina hafa varið íslenskuna. Hann segir að tími snjalltækjanna og sú tunga sem snjalltækin skilji kunni að verða íslenskunni banabiti – ef tækin skilja ekki íslensku.

„Fari svo að ný kynslóð Íslendinga tali ensku við heimilistækin er stutt í að meirihluti Íslendinga tali íslensku helst við hátíðleg tækifæri. Við höfum þrjú til fimm ár til að koma í veg fyrir að framtíðin verði þannig.“

Þorsteinn segir verkefnið að leiða saman sérfræðinga í tungumálinu og tölvutækninni til þess að hanna hugbúnað sem geri heimilistækjunum kleift að skilja íslensku. „Verkefnið kostar um það bil einn og hálfan milljarð króna. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Við höfum þekkinguna en ekki peningana.“

Þorsteinn bætir við: „Það væri verðugt verkefni fyrir fyrirtækin í landinu að leggja fram á næstu þremur til fimm árum verulegan hluta þessara fjármuna sem þarf til að gefa íslenskunni tækifæri. En ríkisvaldið verður að leggja sitt af mörkum og fara fyrir verkefninu.“