Mikilvægt að fylgjast með fjölmiðlum

Lögregla hvetur til þess að landsmenn fylgist mjög vel með tilkynningum og fréttum fjölmiðla í dag. Lögregla hafi ekki tök á umfangsmikilli upplýsingagjöf ef verkefni kalli á annað, en mikil brögð eru að því að fólk hringi í lögreglu og leiti upplýsinga. Lögregla segist að sjálfsögðu bregðast við allri neyð en það gæti létt á álagi ef almenningur nýtti sér fréttamiðla til að fá almennar upplýsingar.

Þetta kom fram í aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu.

Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu en það verður ekki fyrr en líður á daginn sem þetta „stórhættulega veður“ eins og fagaaðilar kalla það skellur á.

Aftakaveður verður á öllu landinu eftir kl. 19. Er spánni líkt við hið svokallaða Engihjallaveður fyrir 25 árum, 40 sekúndna meðalvindi jafnvel, hviður gætu orðið 60 m á sekúndu sem þýðir að það er ekki stætt. Allt getur fokið sem fokið getur, bílar, þök og annað og getur verið rétt að huga að því hvar bílum skal lagt.

Samgöngur munu á næstu klukkutímum leggjast niður, það á við um strætó, innanlandsflug og annað.