Íbúðir - mikilvægasta viðfangsefnið

Húsnæðismálin eru mikilvægasta viðfangsefni borgarinnar segir borgarstjóri. Húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar til ársins 2020 var samþykkt í borgarstjórn í gær. í þessari áætlun er sett fram greining á stöðu húsnæðismála í borgini og birt er yfirtlit yfir aðgerðir í húsnæðismálum.

Einnig eru birt töluleg markmið um fjölda íbúða sem þarf að byggja á næstu árum. Þá eru helstu byggingarsvæði í Reykjavík skilgreind. Fjallað er um það hvernig uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem Reykjavíkurborg beitir sér sérstaklega fyrir verður háttað í samvinnu við stéttarfélög og önnur félagasamtök sem beita sér í húsnæðismálum.

Samþykktar voru tillögur um uppbyggingu án hagnaðarsjónarmiða og um félagslega blöndun og um hraðari uppbyggingu á nýjum svæðum og um betri og öruggari leigumarkað og um ódýrari íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði við þetta tilefni að til að mæta fjölbreyttum þörfum á húsnæðismarkaði hafi þurft áætlun sem væri bæði félags og stórhuga og róttæk.

rtá

Nánar www. reykjavik.is