Mikill verðmunur hjá íþróttafélögum

Meira en tvöfalt dýrara er að æfa handbolta með því félagsliði sem innheimtir minnst fyrir æfingarnar og þess sem tekur mest fyrir þær, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun verðlkagseftirlits Alþýðusambands Íslands.

Mestur verðmunur í samanburðinum er á mánaðargjaldinu fyrir 4. flokk eða 119%. Öll félögin bjóða upp á æfingar fyrir 8. flokk (6 og 7 ára) en dýrasta mánaðargjaldið er 6.883 kr. hjá ÍBV en ódýrasta gjaldið er 3.182 kr. hjá HK sem er 3.702 kr. verðmunur eða 116%. 

Í 6. flokki (10 og 11 ára) er dýrasta mánaðargjaldið 8.250 kr. hjá Fjölni og ÍR en ódýrasta gjaldið er 4.000 kr. hjá Umf. Selfoss sem er 4.250 kr. verðmunur eða 106%.

Dýrast er að æfa í 4. flokki (15 og 16 ára). Í þeim flokki er dýrasta mánaðargjaldið 12.500 kr. hjá Fjölni en ódýrasta gjaldið er 5.700 kr. hjá Val sem er 6.800 kr. verðmunur eða 119%.