Fjölbreytileiki veðursins hefur verið með allra mesta móti þennan veturinn, en líklega hefur mestmegnis borið á stormviðvörunum og viðeigandi kafaldsbyl ofan í öll þau varnaðarorð. Ljósmyndin sem fylgir þessari frétt og var tekin á austurbakka Reykjavíkurtjarnar í kvöld segir kannski meira en mörg orð þegar kemur að blessuðu veðrinu þessi dægrin og vikurnar; þungur veðrabakki í grennd sem rís eins og tröllslegur kambur á vesturhimni og veit á einhver veður í nánd sem eru til alls líkleg. Búist er við allhvassri eða hvassri suðvestanátt í byrjun vinnuvikunnar með snjókomu eða éljum og geta akstursskilyrði orðið erfið, sér í lagi á fjallvegum. Heldur dúrar svo þegar líður á daginn, sem er auðvitað bara lognið á undan næsta stormi sem skellur á landsmönnum á þriðjudaginn með tilheyrandi útsynningi af harðari taginu, kafafjúki og blindösku.
Mikill veðrasirkus fram undan
Fleiri fréttir
Nýjast