Afar tvísýnt er um hvort að nýtt tilboð sem nefnt er Lokatilboð frá Sjómannasamböndunum verði samþykkt af hálfu SFS. Orð sjávarútvegsráðherra í morgun, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um að útilokað sé að breyta skattreglum fyrir dagpeninga sjómanna hafa gert marga æfa. Sjómenn tala saman á facebook síðu og þar má sjá mörg ummæli sjómanna um að þar með sé meginkrafa þeirra út af borðinu og ekkert að semja um. Vilhjálmur Birgissson, formaður Verkalýðsfélags Akraness sem situr í samninganefnd, segir samningsumleitanirnar búið spil fái sjómenn ekki skattafslátt af fæðispeningum – eða dagpeningum - líkt og gildi almennt um dagpeninga ríkisstarfsmanna og flugmanna.
Þorgerður Katrín hefur þó frá upphafi útilokað að ríkið stuðli að breyttu skattaumhverfi eða öðru varðandi deiluna. Hún beinir orðum sínum til útgerðarfyrirtækjanna um að þeir verði að bera einfaldlega kostnaðinn af raunhæfum dagpeningagreiðslum. Ríkið muni ekki niðurgreiða það fyrir útgerðarmenn.
SFS krefst þess að skattareglum verði breytt svo sjómenn geti notið skattfrjálsra dagpeninga en eins og er fá þeir rúmlega 1600 krónur á dag í fæðispening sem er skattlagður.
Andstaða sjávarútvegsráðherra við að sjómenn fái skattafslátt af fæðispeningum líkt og gildi almennt um dagpeninga, drap tilboð sjómanna frá í gær, sagði Vilhjálmur á morgunvaktinni á Rás eitt í morgun.