Mikill skortur á litlum íbúðum

Mikill skortur er á smærri og ódýrari íbúðum eins og vel kom fram í fasteignaþættinum Afsali á Hringbraut í gærkvöld, en Krissi Aðalsteins, útvarpsmaður á FM 89,1, útvarpi Hringbrautar, fór þar á tvo staði og skoðaði álitlegar eignir sem eru dæmigerðar fyrir þær sem hvað mest eftirsóttar eru.

Þátt gærkvöldsins má sjá hér á vef stöðvarinnar, en önnur eignin sem hér um ræðir er á 22,5 milljónir króna og ný uppgerð í Gyðufelli. Hin er á hinum eftirsótta stað, 101 Reykjavík með einkabílastæði! Og áhorfendum mun ekki leiðast að kíkja á þessar eignir.

Þá er spurningum frá áhorfendum Hringbrautar svarað í þættinum að þessu sinni, en þetta er nýjung í þættinum. Að sögn Rakelar Sveinsdóttur, annars umsjónarmanns þáttanna, er hugmyndin að nýta fyrirspurnargátt Spyr.is fyrir áhorfendur, til að spyrja um fasteignamál: \"Í þessum þætti svörum við til dæmis fyrirspurn um myglusvepp annars vegar og riftun á samningi í kjölfar hjónaskilnaðar hins vegar.”

Ásdís Ósk Valsdóttir á Húsaskjóli og Guðrún Antonsdóttir á Garún fasteignamiðlun eru gestir kvöldsins. Í fréttatengdri umræðu er rætt um verðtrygginguna, sem Guðrún segir vera komna langt út fyrir öll skynsemismörk. Þá er rætt um áhrif verðtryggðra lána á fasteignaeigendur á landsbyggðinni, þar sem fasteignaverð er oftast ívið lægra en þekkist á höfuðborgarsvæðinu.

Afsal er í endursýningu í dag og eins um helgina.